Það er með ólíkindum að dvöl minni hjá
Media Posse sé lokið. Í kvöld vorum við með sýningu á verkunum okkar síðustu tvo mánuði. Það var magnað að sjá hverju við höfðum áorkað og það er ennþá magnaðara að vita að maður skilur eftir sig verk sem koma til með að lifa næstu árin hjá þessu fyrirtæki - jafnvel atvinnutækifæri ef vatn rennur þannig til sjávar.
Ég get alveg sagt ykkur það að mér hefur liðið mis vel hérna. Mér hefur liðið hrikalega illa og ég hef líka notið mín fram í fingurgóma.
Ég hef kynnst margslungu fólki hérna sem að ég á vonandi eftir að hafa samband við þegar fram líður. Mér dettur helst í hug Tom, Rafael og Justin. Tom er maðurinn sem að lánaði okkur húsið sitt meðan við vorum hérna. Fyrrverandi lögfræðingur, núverandi smásagnahöfundur, Porsche eigandi og samkynhneigður með meiru. Gull af manni og mér fannst leiðinlegt að geta ekki kvatt hann persónulega. Rafael er stuttur Suður-Amerískur, samkynhneigður fasteignasali sem vill manni bara vel. Justin hitti ég bara einu sinni. Hann er þrítugur, "surf"-dúd sem kóðar flóknustu kóða fyrir The National Reserve. Toppið það! Ég hjálpaði honum að flytja búslóðina sína og upp úr krafsinu hafði ég Fender Stratocaster og magnara (sem ég seldi í síðustu viku fyrir 100$). Allir þessir menn eiga mikið gott skilið og óska ég þeim alls hins besta og vonandi fæ ég að hitta þá aftur.
Ég keypti mér hjólabretti hérna snemma í ferðinni og hef ég fengið að njóta þess að renna mér í garði hérna rétt hjá með útsýni yfir miðbæ San Fran. Ég kem til með að sakna þess að brjóta upp vinnudaginn minn með því að fara þangað og smella góðum tónum á mp3 tónhlöðuna mína kennda við iPod og njóta lífsins.
Ég hef áorkað meiru en ég bjóst við fyrir 4 vikum síðan og hef fengið að framkvæma hluti sem mér hefðu aldrei hugskotist nema fyrir það að ég er hérna.
Síðasta helgi var æðisleg. Ég fór til Houston, Texas, að hitta frænku mína. Við Salma höfum ekki hist í ein 18 ár. Hún kom til Íslands 1990 þegar Persaflóastríðið stóð sem allra hæst og fór svo aftur frá Íslandi '91 að mig minnir. Við áttum frábæran tíma saman með henni og vinum hennar. Ég meira að segja gerðist alger "hill-billy" og fór með vini hennar á skotæfingasvæði og skaut úr 4 mjög frægum byssum, meðal annars Walter PPK, betur þekkt sem James Bond byssan. Við borðuðum góðan mat og ég fékk að sjá gamla skólann þeirra og hitti meira að segja gamlan kennara þeirra sem hafði gaman af því að ræða íslenskt efnahagslíf... ég talaði nú bara mest lítið við þann mann en hann virtist mjög fróður engu að síður.
Ég hlakka mikið til að hitta Sölmu aftur og vonandi verður það sem fyrst! Það líða ekki 18 ár aftur gott fólk.
Eftir rúma þrettán tíma verð ég lentur í San Diego að hitta hana Sunnu mína og tengdafjölskyldu, með meiru. Ég fór til San Diego fyrir nokkrum vikum síðan og ég get ekki beðið eftir að komast þangað aftur.
Á laugardaginn er svo förinni heitið að hitta Palla frænda og frú hans í LA. Við Sunna ætlum að keyra frá SD og eyða helginni með þeim. Kannski maður kíki við hjá Hollywood skiltinu...
Næstu vikur verða svo meira og minna lærdómur. Ég er búinn að senda inn efni lokaverkefnis míns og fékk góðar móttökur. Ef allt gengur eftir góðir hálsar þá er aldrei að vita nema maður byrji bisness á Íslandi áður en langt um líður.
Við eigum svo flugferð til New York þann 24. apríl og hitti ég þá systur Sölmu og frænku mína hana Nadiu. Ég hef nú fengið að hitta hana meira en Sölmu síðustu ár en hlakka engu að síður að hitta hana aftur.
Þann 27. apríl er það New York - Keflavík - Keflavík - Kastrup. Stutt stopp á klakanum, bara millilending.
Við ætlum að stoppa í Kaupmannahöfn yfir nótt og hitta Klöru frænku og nýfæddan son hennar. Við komum til með að eiga gott spilakvöld henni og Allan ef ég þekki okkur rétt.
Kolding þann 29. apríl! Hitta Ásu, Finn og litla skottið hana Ingu Rós. Ég hef saknað þeirra mikið hérna úti. Ása - gú takk fyrir! Kjóna reyni ég líka að hitta þegar ég kem - einn veg eða annan!
Ég vona að þið séuð ekki að deyja úr aðgerðarleysi með að lesa alla þessa romsu. Hefur bara liðið svolítill tími síðan ég skrifaði síðast.
Bestu kveðjur "ya'll!"
Hvati, skytta með meiru.